Hlíð 50 ára

Hlíð 50 ára Líkt og Akureyrarkaupstaður, Lystigarðurinn, Minjasafnið og Háskólinn á Akureyri, á dvalar- og hjúkrunarheimilið Hlíð á stórafmæli á þessu

Flýtilyklar

Hlíð 50 ára

Öldrunarheimilið Hlíð.
Öldrunarheimilið Hlíð.

Líkt og Akureyrarkaupstaður, Lystigarðurinn, Minjasafnið og Háskólinn á Akureyri, á dvalar- og hjúkrunarheimilið Hlíð á stórafmæli á þessu ári. Heimilið var vígt á 100 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar 29. ágúst 1962 og er því 50 ára.

Af því tilefni verður haldin málstofa síðasta mánudag hvers mánaðar kl. 12.15-12.45 í samkomusalnum í Hlíð. Fengnir verða fyrirlesarar úr ólíkum áttum til þess að fjalla um athyglisverð málefni sem varða efri árin.

Hrefna Brynja Gísladóttir iðjuþjálfi á Öldrunarheimilum Akureyrar ríður á vaðið mánudaginn 30. janúar nk. og segir frá Eden-hugmyndafræðinni sem unnið er eftir á öldrunarheimilunum. Allir eru velkomnir.


-2°A 2 m/s

Akureyrarkaupstaður leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.


Stjórnkerfi Akureyrarbæjar er tvískipt eins og önnur opinber stjórnkerfi á Íslandi. Annars vegar er pólitíska kerfið, bæjarstjórn sem lýðræðislega kjörnir bæjarfulltrúar skipa, og fastanefndir en í þeim sitja bæjarfulltrúar og aðrir sem bæjarstjórn kýs. Æðsti yfirmaður pólitíska kerfisins er forseti bæjarstjórnar. Hins vegar er embættismannakerfið, þ.e. ráðnir stjórnendur bæjarfélagsins með bæjarstjóra sem æðsta yfirmann.


Hér finnur þú ýmis umsóknareyðublöð og auglýsingar frá Akureyrarbæ. Einnig er hægt að fara inn á íbúavef Akureyrarbæjar til að skoða reikninga og fleira.

 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16

Netföng og símanúmer     |     Laus störf     |     Hafa samband