Haustmarkaður í Víðilundi

Haustmarkaður er haldinn í dag, föstudaginn 17. október, frá kl. 10-16 í Víðilundi 22. Þar er á boðstólum alls kyns handverk og lukkupakkar gegn vægu gjaldi. Einnig verður opin kaffisala frá kl. 14.45-15.15 og slegið upp "dansiballi" frá klukkan 15 þar sem góðvinir félagsmiðstöðva eldri borgara leika fyrir dansi.

Allir eru ævinlega velkomnir.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan