Haustfrí í grunnskólum - fjölbreytt afþreying á Akureyri

ljosmynd: Maria Tryggvadottir
ljosmynd: Maria Tryggvadottir

Haustfrí í grunnskólum landsins hefjast í þessari viku og þeirri næstu og eru skipulögð fram í enda októbermánaðar. Á Akureyri er upplagt að njóta haustfrísins með fjölskyldunni og er úr fjölbreyttri afþreyingu að velja. Á www.visitakureyri.is má sjá lista af afþreyingarhugmyndum þar sem fjölskyldan getur notið saman inni- eða útiveru. Hægt er að heimsækja fjölda safna, fara í sund, á skauta og skautadiskó, fara í leikhús og velja úr fjölda gönguferða sem merktar eru með upplýsingaskiltum s.s. í Krossanesborgum, skoða útlistaverk á Akureyri með aðstoð bæklings eða hljóðleiðsagnar og fleira skemmtilegt.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan