Guðbjörg Ringsted bæjarlistamaður

Mynd: Völundur Jónsson.
Mynd: Völundur Jónsson.

Vorkoma Akureyrarstofu fór fram í Ketilhúsinu – Sjónlistamiðstöðinni í dag, sumardaginn fyrsta. Þar voru kunngjörðar ákvarðanir stjórnar Akureyrarstofu um viðurkenningar á sviði menningar, húsverndar, atvinnumála og síðast en ekki síst, hver hlýtur starfslaun listamanns Akureyrar 2012 til 2013.

Það var niðurstaða stjórnar Akureyrarstofu að starfslaun listamanna 2012-2013 komi í hlut Guðbjargar Ringsted listmálara. Guðbjörg byggir viðfangsefni sín á íslensku listhandverki og í meðförum hennar á þeirri hefð er hún óhrædd við að kanna þanþol viðfangsefnisins. Guðbjörg hefur sýnt á undanförnum árum myndir sem bera þess merki að hún vinnur staðfast og markvisst að list sinni.

Tvær heiðursviðurkenningar voru veittar úr Menningarsjóði og var það mat stjórnar Akureyrarstofu að þær mundu falla í skaut Dýrleifar Bjarnadóttur og Hauks Ágústssonar en bæði hafa lagt mikið af mörkum til menningarlífs á Akureyri. Byggingarlistaverðlaun Akureyrar voru veitt Glámu/Kím Arkitektum fyrir 4. áfanga viðbyggingar við Háskólann á Akureyri sem þykir afar vel heppnuð og er vel við hæfi að veita þessa viðurkenningu í ár, þar sem Háskólinn á Akureyri fagnar nú 25 ára afmæli sínu.

Þrjú hús á Akureyri fengu viðurkenningu Húsverndarsjóðs: Hafnarstræti 94, í daglegu tali nefnt Hamborg, Hafnarstræti 86a daglega nefnt Ragúelshús og Lækjargata 6. Öll hafa þau verið gerð upp af mikilli natni, spila stórt hlutverk í fallegri og sjarmerandi götumynd og eru bænum til mikils sóma.

Stjórn Akureyrarstofu veitti einnig verðlaun til tveggja fyrirtækja: Kristjánsbakarí hlaut athafnaverðlaun en bakaríið fagnar í ár aldarafmæli sínu og er þar með elsta fyrirtæki bæjarins, auk þess að vera eitt þeirra stærstu, og nýsköpunarverðlaun Akureyrarstofu voru veitt ferðaþjónustufyrirtækinu Saga Travel, fyrirtæki sem starfað hefur siðan 2009 og gert virkilega góða hluti á ferðamannamarkaði á þessum stutta tíma.

Að síðustu voru veittar viðurkenningar fyrir bestu viðskiptaáætlanirnar frá Athafna- og nýsköpunarhelginni sem haldin var á Akureyri í lok febrúar og voru verðlaunin veitt fyrir þrjú efstu sætin. Fyrsta sætið hlaut Guðlaugur Lárusson fyrir viðskiptaáætlunina Viral Trade kauphöllin sem er fyrstu frjálsi markaðurinn fyrir rafrænar eignir í stafrænum kerfum. Annað sæti kom í hlut Birkis Arnar Péturssonar og Egils Heinesen fyrir viðskiptaáætlunina Whale Buddy, þar sem markmiðið er að auðvelda ferðamönnum í hvalaskoðun að njóta leiðsagnar óháð tungumáli. Þriðja sætinu deildu tvö verkefni, annars vegar Campalo sem er fyrsta alþjóðleg bókunarkerfið fyrir tjaldsvæði, Hrafnhildur Karlsdóttir tók á móti verðlaununum, og hins vegar tók Ingi Ragnar Sigurbjörnsson á móti þriðju verðlaunum fyrir hugmynd sem gengur út á að nýta íslensk strá sem tannstöngla.

Meðfylgjandi mynd tók Völundur Jónsson fyrir Akureyri Vikublað.

Á myndinni eru frá vinstri neðri röð: Hrafnhildur Karlsdóttir, Sigmundur Einarsson og Guðbjörg Inga Jósefsdóttir eigendur Hafnarstrætis 94, Guðbjörg Ringsted bæjarlistamaður 2012-2013, Guðrún Jónsdóttir eigandi Lækjargötu 6, Dýrleif Bjarnadóttir heiðursviðurkenningarhafi Menningarsjóðs og Birgir Snorrason eigandi Kristjánsbakarí. Frá vinstri efri röð: Halla Björk Reynisdóttir formaður stjórnar Akureyrarstofu, Birkir Örn Pétursson, Egill Heinesen, Sævar Freyr Sigurðsson eigandi Saga Travel, Ingi Ragnar Sigurbjörnsson, Sigurður Kristinsson forseti hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri, Sigurður Halldórsson frá Glámu-Kím Arkitektum, Haukur Ágústsson heiðursviðurkenningarhafi Menningarsjóðs, Bjarni Reykjalín eigandi Hafnarstrætis 86 a, Sölvi Ingólfsson eigandi Lækjargötu 6 og Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan