Guðbjörg gefur bænum málverk

Eiríkur Björn Björgvinsson og Guðbjörg Ringsted með málverkið góða.
Eiríkur Björn Björgvinsson og Guðbjörg Ringsted með málverkið góða.

Guðbjörg Ringsted afhenti í gær Akureyrarkaupstað að gjöf málverkið Flögrandi (90x90 sm) sem þakklætisvott fyrir þann heiður sem henni var sýndur með því að hafa verið valinn bæjarlistamaður 2012-2013. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri veitti verkinu viðtöku á Listasafninu á Akureyri en málverkinu hefur þegar verið valinn staður í Naustaskóla, nýjasta grunnskóla bæjarins.

Guðbjörg sagði við þetta tækifæri meðal annars að titillinn bæjarlistamaður hafi verið henni talsverð lyftistöng og auðveldað henni að koma sér á framfæri sem listamanni.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan