Gerum bæinn rauðan

Viðburðastofa Norðurlands og Akureyrarstofa hvetja bæjarbúa til að skreyta allt með rauðu þegar fjölskylduhátíðin Ein með öllu gengur í garð um verslunarmannahelgina. Óskað er eftir að garðar og hús verði skreytt með einhverju rauðu en það rímar skemmtilega við rauðu hjörtun sem sett hafa svip sinn á bæinn á síðustu árum, til að mynda í götuvitunum.

Því eru rauðar seríur, rautt skraut eða eitthvað rautt og fallegt það sem fólk er beðið um að gera sýnilegt við heimili sín frá 30. júlí til 6. ágúst nk. Þannig sýna Akureyringar í verki að gestir eru ævinlega velkomnir á Eina með öllu.

Heimasíða Einnar með öllu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan