Fyrsta skemmtiferðaskipið í Hrísey

Mynd: Linda María Ásgeirsdóttir
Mynd: Linda María Ásgeirsdóttir

Í gær kom skemmtiferðaskip fyrsta sinni til Hríseyjar. Til stóð að skipið færi til Siglufjarðar og Grímseyjar en það varð frá að hverfa vegna óhagstæðrar vindáttar. Í staðinn var lagst við stjóra í námunda við Hrísey og fólk ferjað í land. Hríseyingar brugðust snarlega við og tóku vel á móti þessum óvæntu gestum.

Um 160 farþegar stigu á land og meðal þess sem fólkið gerði var að skoða sig um í þorpinu, fara í traktorsferðir og heimsækja Hús Hákarla Jörundar. Farþegarnir voru fluttir í land í slöngubátum, 6–8 manns í einu. Mikil ánægja var með heimsóknina í Hrísey og binda menn vonir við að þessi óvænta heimsókn verði til þess að byggja upp frekari þjónustu á þessu sviði.

Skipið sem kom heitir Fram og er á vegum Hurtigruten Group sem leggur áherslu á siglingar um Norðursjó og Norður Atlantshafið á sumrin. Skipið er nú við bryggju á Akureyri en stefnir að því að heimsækja Grímsey á morgun þegar það heldur ferðalagi sínu áfram.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan