Frú Vigdís heiðursgestur

Vigdís Finnbogadóttir
Vigdís Finnbogadóttir
Frú Vigdís Finnbogadóttir verður heiðursgestur á brautskráningu Háskólans á Akureyri á laugardaginn 13. júní á afmælisári 100 ára kosningaréttar kvenna. Athöfnin fer fram í glæsilegum húsakynnum skólans og er það í annað sinn sem það er gert. Háskólinn á Akureyri mun útskrifa 322 nemendur á laugardaginn og verður brautskráningin í fyrsta sinn í sögu skólans í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni N4 og hefst kl. 11:00. Með þessu gefst tækifæri fyrir alla að horfa á ávarp frú Vigdísar ásamt annarri dagskrá brautskráningar í beinni sjónvarpsútsendingu eða á vef N4. Brautskráningin er söguleg þar sem konur munu gegna hlutverki sviðsforsetanna þriggja en slíkt hefur ekki gerst áður. Þetta eru þær Árún K. Sigurðardóttir fyrir heilbrigðisvísindasvið, Sigrún Stefánsdóttir fyrir hug- og félagsvísindasvið og Rannveig Björnsdóttir staðgengill Ögmundar Knútssonar fyrir viðskipta- og raunvísindasvið. Þetta er fyrsta brautskráning í rektorstíð Eyjólfs Guðmundssonar.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan