Frítt á tónleika með stelpunum

Stelpur rokka á Norðurlandi í samstarfi við Ungmennahúsið Rósenborg og Listasumar á Akureyri, halda lokatónleika Rokksumarbúða fyrir 12-16 ára stelpur og transkrakka í Rósenborg klukkan 17 í dag. Undirbúningur hefur staðið alla þessa viku.

Frítt er inn á tónleikana en þar koma fram tvö ný bönd sem spila frumsamda tónlist. Fólk er hvatt til að mæta og halda uppi góðri stemningu. Hér eru á ferðinni ótrúlega flottar upprennandi tónlistarkonur sem eru margar að stíga sín fyrstu skref í tónlistinni.

Starf Stelpur rokka á Norðurland árið 2016 er styrkt af Akureyrarstofu, Uppbyggingarsjóði Norðurlands Eystra og Uppbyggingarsjóði Norðurlands Vestra, auk þess sem Bakaríið við brúna, Hamborgarafabrikan og Dominos hafa styrkt starfið með því að gefa veitingar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan