Freyja Dögg ráðin svæðisstjóri RÚVAK

Freyja Dögg Frímannsdóttir.
Freyja Dögg Frímannsdóttir.

Freyja Dögg Frímannsdóttir hefur verið ráðin svæðisstjóri RÚVAK. Svæðisstjóri verkstýrir og ber ábyrgð á fréttaflutningi af landsbyggðinni í útvarpi, sjónvarpi og á vefnum en RÚV er með fréttamenn og fréttaritara í öllum landshlutum.

RÚV ætlar að efla starfsemi sína á landsbyggðinni á næstu misserum og framundan er vinna við endurskipulagningu, þróun og uppbyggingu til framtíðar en Freyja mun leiða þessa vinnu.

Svæðisstjóri mun stýra starfsemi RÚV á Akureyri sem og annarri starfsemi á landsbyggðinni. Ýmsar breytingar eru áformaðar, meðal annars verður lögð stóraukin áhersla á miðlun svæðisbundinna frétta á vefnum.

Freyja Dögg starfaði um nokkurra ára skeið sem fréttamaður hjá RÚV á Akureyri auk þess sem hún hefur umtalsverða reynslu af verkefnastjórnun og vinnslu fyrir vef. Hún er með meistaragráðu í upplýsingatæknifræði.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan