Framkvæmdir við Drottningarbrautarreit

Framkvæmdir eru hafnar við lagna- og gatnagerð á svæðinu sunnan Bautans eða á hinum svokallaða Drottningarbrautarreit. Bílastæðum mun fækka umtalsvert meðan á framkvæmdum stendur og verður malbikuðu stæðunum lokað í vikunni til að tryggja öryggi á vinnusvæðinu.

Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum undir lok júlí 2016.

Hægt er að nýta bílastæðin við Samkomuhúsið og í Strandgötu meðan á framkvæmdum stendur.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar framkvæmdir kunna að valda.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan