Framhaldsskólanemar fá frítt í sund

Mynd: Gísli Kristinn Lórenzson.
Mynd: Gísli Kristinn Lórenzson.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Loga Más Einarssonar um að framhaldsskólanemar í bænum fái frítt í sund meðan á verkfalli framhaldsskólakennara stendur gegn framvísun skólaskírteina. Í bókun bæjarráðs segir orðrétt: "Mikilvægt er að hvetja nemendur til virkni á meðan á verkfalli stendur og þetta er viðleitni Akureyrarbæjar til að gera þeim það kleift."

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan