Fornleifadagskrá í Eyjafirði


Næstkomandi fimmtudagskvöld 18. júlí kl. 20 verður boðið uppá fræðsluferð í tengslum við Miðaldadaga á Gásum sem hefjast á föstudaginn. Dagskráin hefst kl 20 þar sem veitt verður leiðsögn um Gásir og gestir fræddir um hvað uppgröfturinn þar hefur leitt í ljós. Rannsóknum á Gásum er lokið í bili en á árunum 2001 - 2006 stóður Minjasafnið á Akureyri, Þjóðminjasafn Íslands og Fornleifastofnun Íslands fyrir fornleifarannsóknum á svæðinu. Þar hefur m.a. fundist eitt stærsta safn miðaldakerjaleirbrota á Íslandi.

Að leiðsögn lokinni mun áhugasömum standa til boða að fara með rútu inn Hörgárdal, að Skugga í landi Staðartungu, þar sem fornleifafræðingar eru nú við uppgröft og rannsóknir sem eru liður í verkefninu Bakland Gása. Markmið verkefnisins miðar að því að setja Gásir í stærra samhengi með því að skoða sveitina sem á sínum tíma studdi við og hagnaðist á verslun við Gásir.

Rútuferðin frá Gásum inn Hörgárdal stendur gestum til boða þeim að kostnaðarlausu (meðan rúm leyfir), en gert er ráð fyrir að þeir komi sér sjálfir að Gásum. Jafnframt er bent á að til þess að komast að uppgreftrinum á Skugga þarf að ganga dálítinn spöl frá þjóðvegi upp grasi gróna hlíð og því er æskilegt að fólk sé vel skóað og klætt eftir veðri. Gera má ráð fyrir um 15 mín göngu og reiknað er með að koma aftur til baka um kl. 22.30.

Það eru Gásakaupstaður ses, Minjasafnið á Akureyri, AkureyrarAkademían og aðstandendur fornleifarannsóknanna á Gásum sem bjóða uppá þessa fræðsluferð.

 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan