Göngustígur frá flugvellinum

Horft til norđurs eftir nýja stígnum.
Horft til norđurs eftir nýja stígnum.

Nú er að mestu lokið að leggja göngustíg til norðurs frá flugvellinum á Akureyri sem tengist síðan eldri stígum við Aðalstræti. Þá geta flugfarþegar gengið fallega leið á malbikuðum stíg frá flugvellinum og síðan í gamla Innbænum inn í miðbæ Akureyrar eða hvert sem vera vill. Nýi stígurinn er 1.160 metrar frá Flugvallarvegi að Miðhúsabraut og 150 metrar þaðan að Aðalstræti.

Stígurinn verður malbikaður og fullkláraður í vor og þar með formlega opnaður fótgangandi fólki.

Loftmynd sem sýnir legu stígsins.