Fjölskylda í Útsvari

Útsvarsliðið í æfingabúðum.
Útsvarsliðið í æfingabúðum.

Lið Akureyrar í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RÚV, er að þessu sinni skipað þremenningum sem allir tengjast fjölskylduböndum. Urður Snædal heldur áfram frá því í fyrra en með henni að þessu sinni verða maðurinn hennar Ragnar Elías Ólafsson og faðir hans, tengdafaðir Urðar, Ólafur Helgi Theodórsson. Liðið er því afar samstillt og æfingabúðum er slegið upp í hvert sinn sem þau þrjú hittast.

Eftir því sem næst verður komist keppir þetta nýja lið Akureyrarbæjar fyrsta sinni föstudagskvöldið 27. nóvember nk.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan