Fiðla og fótstigið

Eyþór Ingi og Lára Sóley spila fyrir krakkana.
Eyþór Ingi og Lára Sóley spila fyrir krakkana.

Fiðla og fótstigið er samstarfsverkefni fiðluleikarans Láru Sóleyjar Jóhannsdóttur og organistans Eyþórs Inga Jónssonar. Um er að ræða fræðandi, skapandi og aðgengilegt tónleikaprógram sem ætlað er nemendum á grunn- og framhaldskólaaldri.

Nú þegar hafa þau spilað í nokkrum skólum á Eyjafjarðarsvæðinu, meðal annars í Grímsey, Hrísey, á Hrafnagili og Akureyri.

Flutt er tónlist eftir mörg af þekktustu tónskáldum veraldar í nýjum búningi þar sem útsetningar og spuni setja létta, þjóðlega stemmningu og gera tónlistina enn aðgengilegri hlustendum; Mozart á moldargófli, Schubert í sauðskinsskóm, Liszt í lopapeysu, Handel með hangikjöti og Lully lundabaggi eru uppskriftir tónleikanna.

Leikið er á fiðlu og fótstigið orgel, harmoníum. Flytjendur eru í þjóðbúningum og notast jafnframt við skjávarpa þar sem myndum og fræðslu frá viðeigandi tónlistartímabilum er varpað upp. Leitast er við að tónleikagestir taki virkan þátt í tónleikunum meðal annars með söng og klappi.

Um er að ræða sjálfsprottið starf sem stuðlar að fjölbreyttari menningarstarfi sem sniðið er sérstaklega fyrir börn og ungmenni og flutt í þeirra nær umhverfi. Með tónleikunum vilja flytjendur auka áhuga og þekkingu á klassískri tónlist og ala upp hlustendur og leikendur þess konar tónlistar.

Verkefnið hefur fengið frábærar viðtökur og hafa þónokkrir skólar á Eyjafjarðarsvæðinu nú þegar verið heimsóttir. Verkefnið er styrkt af Norðurorku og Akureyrarstofu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan