Flóttafólkið komið til bæjarins

Ungur flóttamaður á Akureyrarflugvelli.
Ungur flóttamaður á Akureyrarflugvelli.

Í kvöld lentu 23 flóttamenn frá Sýrlandi á Akureyrarflugvelli til að setjast að í bænum. Um er að ræða fjórar fjölskyldur, fólk á öllum aldri, sem hafa verið á ferðalagi í tæpan sólarhring og var fólkið augljóslega mjög þreytt við komuna til bæjarins.

Það fór með rútu af flugvellinum í hús Rauða krossins við Viðjulund þar sem boðið var upp á léttan kvöldverð og bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur Björn Björgvinsson, bauð fólkið velkomið til bæjarins. Að því loknu fóru fjölskyldurnar hver í sína íbúð í fylgd stuðningsfjölskyldu.

Þrátt fyrir mikla þreytu var fólkið augljóslega mjög fegið að vera komið til bæjarins, brosmilt og kátt. Hvarvetna mætti það mikilli hlýju hjá þeim sem á vegi þess urðu og voru þessir nýju Akureyringar boðnir innilega velkomnir.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan