Kvennafrídaginn 24. október stendur Jafnréttisstofa í samstarfi við Akureyrarbæ fyrir opnum fundi um stöðu kvenna í umönnunar- og
þjónustustörfum með sérstaka áherslu á kynbundna og kynferðislega áreitni. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA og hefst kl.
12.00.
Haldin verða þrjú erindi sem fjalla um viðfangsefnið með ólíkum hætti. Jóhanna Berglind Bjarnadóttir og Katrín
Björnsdóttir frá Akureyrarbæ ræða kynferðislega áreitni í umönnunarstörfum. Harpa Ólafsdóttir frá
stéttarfélaginu Eflingu flytur erindi sem nefnist „Eru línurnar í lagi?“. Þá greina Margrét Helga Erlingsdóttir og Elín Inga
Bragadóttir, talskonur Barnings, frá dæmum um framkomu við konur í þjónustustörfum og kynna framtak sitt „kynlegar athugasemdir“.
Húsið verður opnað kl. 11.45 en dagskráin hefst kl. 12.00.
Boðið verður upp á súpu á fundinum.
Dagskrá og
nánari upplýsingar.