Endurskoðun íslensku stjórnarskrárinnar

Á föstudag og laugardag (23. og 24. september) fer fram alþjóðleg ráðstefna í Háskólanum á Akureyri í samstarfi við stjórnarskrárnefnd og forsætisráðuneytið. Þetta verður fyrsta heimsókn Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, í háskólann en hann heldur opnunarerindið.

Til máls taka fjölmargir innlendir og erlendir sérfræðingar, þar á meðal Páll Þórhallsson, formaður stjórnarskrárnefndar, og Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra, sem verður með framsöguerindi. Í kjölfar þess fara fram umræður með þátttöku fulltrúa stjórnmálaflokkanna í stjórnarskrárnefnd.

Rektor Háskólans á Akureyri, Eyjólfur Guðmundsson, er afar ánægður með að háskólinn skuli hýsa fræðilegar umræður um þetta mikilvæga málefni. „Það er okkur mikill heiður að fá að taka á móti nýjum forseta sem setur málefni stjórnarskrárinnar svo ofarlega á sína dagskrá“, segir rektor.

Nánari dagskrá má sjá hér.

Á ráðstefnunni gefst almenningi tækifæri til að hlýða á og ræða við bæði fræðimenn og stjórnmálamenn um þá tilraun til breytingar á stjórnskipun landsins sem staðið hefur yfir frá því í júní 2010 og vakið hefur athygli langt út fyrir landsteinana. Fundarstjórar eru Ágúst Þór Árnason (Háskólinn á Akureyri) og Catherine Dupré (University of Exeter).

Ráðstefnan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir og er án endurgjalds.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan