Éljagangur á morgun

Unnið að gerð snjókarlsins á Ráðhústorgi.
Unnið að gerð snjókarlsins á Ráðhústorgi.

Vetrar- og útivistarhátíðin Éljagangur verður sett á morgun klukkan 17 á Ráðhústorgi þegar Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri tilkynnir um nafnið á snjókarlinum sem rís nú stoltur í blíðunni og fær af þessu tilefni nýtt nef, nýja húfu og nýjan trefil. Það má því gera ráð fyrir að afar smekklegur snjókarl prýði Ráðhústorg.

Við sama tækifæri sýna brettastrákar- og stelpur listir sínar og fulltrúar úr meiri- og minnihluta Akureyrarbæjar ásamt tveimur leikmönnum úr kven- og karlaíshokkíliðum Skautafélags Akureyrar reyna með sér í keppnisgreinum þar sem hraði, leikni og samhæfni skipta aðalmáli. Gestir setningarinnar geta svo gætt sér á veitingum sem fyrirtæki á svæðinu gefa við þetta tækifæri.

Dagskrá Éljagangs sem stendur yfir frá 9. – 12. febrúar er fjölbreytt og skemmtileg: meðal dagskrárliða er Vasaljósaganga í Hlíðarfjalli þar sem gengið verður um myrkvaða braut og verða verðlaun veitt fyrir frumlegasta ljósabúnaðinn, brettasýning og sleðaspyrna á föstudagskvöld í Hlíðarfjalli og enda þau herlegheit á flugeldasýningu, að ógleymdri hinni árlegu Vetrarsportssýning sem haldin er í Boganum og er frítt inn. Þar verður m.a. hægt að prófa kassaklifur og hlýða á fyrirlestra um örugga ferðamennsku á vélsleðum og snjóflóðaöryggisbúnað og lífslíkur í snjóflóðum.

Þetta og margt margt fleira prýðir dagskrá Éljagangs 2012. Alla dagskrána er að finna á síðunni www.eljagangur.is og einnig er hátíðin á Facebook undir eljagangur.

Þetta er í annað skipti sem Éljagangur er haldinn en að hátíðinni standa EY-LÍV félag vélsleðamanna, Akureyrarstofa, KKA Akstursíþróttafélag, Hlíðarfjall, Skíðafélag Akureyrar, Vetraríþróttamiðstöð Íslands og Skautafélag Akureyrar. Einnig leggja fjölmörg fyrirtæki og ferðaþjónustuaðilar hátíðinni lið.