Vegna tafa sem orðið hafa á prentun bæklings og klippikorta verður fyrirhuguðum breytingum á fyrirkomulagi við losun úrgangs frá heimilum
í bænum á Gámasvæðinu við Réttarhvamm seinkað til mánudagsins 8. júní. Kortin og bæklingarnir verða borin út
í næstu viku.
Frá og með mánudeginum 8. júní munu notendur þurfa klippikort til að komast inn á Gámasvæðið við Réttarhvamm og
munu kortin ásamt kynningarbæklingi verða send öllum þeim sem greiða sorphirðugjöld á Akureyri. Klippt verður fyrir gjaldskyldan
úrgang á meðan tekið verður á móti ógjaldskyldum úrgangi án greiðslu. Sjá nánar HÉR.