Billie Holiday í Hofi

Billie Holiday.
Billie Holiday.

Tríó saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar heldur tónleika í Hofi í kvöld kl. 20.00, síðasta vetrardag, í tilefni af útkomu nýs geisladisks sem ber titilinn „Lady Day“. Diskurinn er gerður í tilefni af aldarafmæli söngkonunnar Billie Holiday en hún hefði orðið 100 ára 7. apríl síðastliðinn.

Á efnisskrá verða lög sem Billie hljóðritaði og tengjast henni sterklega. Tríóið skipa auk Sigurðar þeir Eyþór Gunnarsson á píanó og danski kontrabassaleikarinn Lennart Ginman en hann kemur hingað til lands sérstaklega vegna þessara tónleika. Á tónleikunum mun Sigurður segja frá sönkonunni og ferli hennar á milli laga. Þess má geta að Sigurður Flosason hefur verið kjörinn jazzleikari ársins á íslensku tónlistarverðlaununum undanfarin tvö ár og Eyþór Gunnarsson hlaut, ásamt félögum sínum í Mezzoforte, heiðursverðlaun íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2014. Lennart Ginman er einn af fremstu kontrabassaleikurum Dana, bæði vel þekktur og virtur í dönsku jazzlífi.

Billie Holiday, sem hét í raun og veru Eleanora Fagan, var fædd 7. apríl 1915 og lést aðeins 44 ára gömul 17. júlí 1959. Hún átti erfiða ævi og glímdi lengst af við áfengis- og vímuefnafíkn. Bille er í hópi áhrifamestu söngkvenna jazzins. Hún er af flestum talin einn af persónulegustu og sterkustu túlkendum jazzsögunnar. Billie flutti bæði klassiska standarda og eins lög sem samin voru sérstaklega fyrir hana. Tríóið mun flytja blöndu af hvoru tveggja.

Miðar fást í miðasölu Hofs og í síma 450 1000. Opið er frá klukkan 12–18.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan