Beðið eftir kuldatíð

Mynd: Auðunn Níelsson.
Mynd: Auðunn Níelsson.

Nú er aðeins farið að kólna eftir einmuna veðurblíðu í Eyjafirði í haust. Viðvarandi fjögurra gráðu frost eða meira þarf að vera í Hliðarfjalli til þess að snjóframleiðsla geti hafist en stefnt er að því að opna skíðasvæðið fyrir áramót ef hægt er og veður leyfir.

Nú eru sex starfsmenn að undirbúa vetrarstarfið í Hlíðarfjalli en fleiri verða ráðnir tímabundið eins og vant er þegar aðsókn er hvað mest eftir áramótin.

Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli segir að nú sé bara beðið eftir frostinu og snjónum, engin leið sé að segja nákvæmlega til um hvenær skíðasvæðið verði opnað, það ráðist fyrst og fremst af tíðarfari.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan