ART AK opnar á Akureyri-gallery og vinnustofur listamanna

húsnæði ART AK
húsnæði ART AK

Á morgun laugardag kl. 13, opnar á Akureyri fyrirtækið ART AK sem er bæði gallerý og vinnustofur listamanna. Við opnunina verður myndlistarsýning, sem er jafnframt sölusýning, á verkum 16 listamanna. ART AK verður jafnframt með viðburði, gjörninga, listamannaspjall fyrir hópa, örnámskeið, listaverkauppboð og listaverkaleigu og að síðustu er stefnt að því að bjóða upp á vefverslun með listaverk.  Það er listakonan Þóra Karlsdóttir sem stendur að baki fyrirtækinu en það er til húsa í Strandgötu 53 þar sem áður var verslunin Sjóbúðin. Opið verður kl. 13-18 föstudaga, laugardaga og sunnudaga fram að jólum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan