Árleg bólusetning gegn inflúensu

Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

Bólusett verður gegn árlegri inflúensu 29. september til 10. október, að báðum dögum meðtöldum, kl. 10.15-12.15 á 6. hæð heilsugæslunnar. Ekki þarf að panta tíma. Mælt er með bólusetningu fyrir alla 60 ára og eldri og aðra sem haldnir eru langvinnum sjúkdómum. Nánar má sjá um verð og fyrirkomulag hér.

Fyrirtæki sem óska eftir bólusetningu fyrir starfsmenn sína sendi tímanlega lista á HAK. Nafnalista fyrir fyrirtæki má nálgast hér. Hægt er að senda starfsmannalista á netfang: hak@hak.ak.is eða faxa í númer: 460 4667.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan