Alvöru menn í Hofi

Alvöru menn!
Alvöru menn!

Gamanleikurinn Alvöru menn verður sýndur í Hofi 24. febrúar en þar er á ferðinni blanda af uppistandi, söng og líkamlegum áhættuleik. Verkið er eftir þá Glynn Nicholas og Scott Rankin og hefur farið sigurför um heiminn frá því það var frumsýnt í Ástralíu árið 1999. Það er vinsælasta gamanleikrit Svíþjóðar í dag og verður sett upp á West End í London nú í febrúar.

Verkið segir frá þeim Hákoni, Smára og Finni Snæ sem eru allir háttsettir vinnufélagar. Dag einn tilkynnir Guðmundur, eigandi fyrirtækisins, þeim að þeir þurfi að fara á sólareyju til að endurskipuleggja fyrirtækið og það verði að reka einhvern. Ferðin verður því full af spennu, samkeppni og óvæntum uppákomum. Þeir þurfa að horfast í augu við lífshættulegar aðstæður jafnt sem sinn innri mann og má vart á milli sjá hvort er fyndnara.

Leikarar eru Egill Ólafsson, Jóhann G. Jóhannsson, Gunnar Helgason og Jóhannes Haukur Jóhannesson. Með þeim á sviðinu er píanóleikarinn snjalli Pálmi Sigurhjartarson sem leikur undir í lögunum auk þess að sjá um lifandi leikhljóð.