Nú eru svonefndir Vetrardagar í Smáralind í Kópavogi og þar kynnir Akureyrarstofa það sem um er að vera fyrir norðan þessa dagana undir slagorðinu "Komdu norður - Vetrarfrí á Akureyri". Akureyringurinn og háskólaneminn Jónas Mellado stendur vaktina í Smáralind um helgina og meðfylgjandi símamynd var tekin af honum í dag við kynningarborð Akureyrar.
Kynning Akureyrarstofu syðra er hluti af átakinu "Komdu norður 2012". Þeir sem hafa í hyggju að skella sér norður næstu daga geta kynnt sér flest það sem um er að vera á heimasíðunni Visitakureyri.is - upplýsingarnar nýtast að sjálfsögðu einnig heimafólki.

