Akureyrarmótið í götuhjólreiðum

Akureyrarmótið í hjólreiðum fer fram 24. ágúst næstkomandi. Keppt verður í tveimur flokkum í bæði karla- og kvennaflokki, A og B flokki. A flokkur er á götuhjólum og öðrum hjólum með hrútastýri, B flokkur er á fjallahjólum og öðrum hjólum með áþekk stýri. Mótið hefst 24. ágúst klukkan 11 hjá N1 við Leiruveg og hjólaður er Eyjafjarðarhringurinn réttsælis.

Þetta er skemmtilegt mót sem hæfir öllum, byrjendum jafnt sem lengra komnum. Með því að taka þátt í keppninni getur fólk bætt persónulegan árangur sinn í skemmtilegum félagsskap.

Nánar um skráningu og keppnisgjald.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan