Akureyrarbær vill taka á móti flóttamönnum

Akureyrarbær fagnar því að íslensk stjórnvöld hafi lýst vilja til að taka á móti flóttamönnum á þessu ári og því næsta. Bærinn tekur undir undir með félags- og húsnæðismálaráðherra um að þær þjóðir sem geta, verði að axla ábyrgð og gera sitt til að létta á vanda þeirra sem nú dvelja í flóttamannabúðum á Ítalíu og Grikklandi.

Fullur vilji er hjá Akureyrarbæ að leggja sitt lóð á vogarskálarnar og greiða fyrir því að flóttamönnum verði sköpuð ný tækifæri og góð lífsskilyrði. Akureyrarbær hefur nú þegar sett sig í samband við velferðarráðuneytið og óskað eftir viðræðum um að sveitarfélagið geti við fyrsta tækifæri tekið á móti flóttafólki.

Árið 2003 tók Akureyrarbær á móti 24 flóttamönnum frá fyrrum Júgóslavíu og gekk sú vinna ákaflega vel. Öll stuðningsþjónusta var til fyrirmyndar og bæjarbúar tóku vel á móti þessum nýju íbúum. Allar fjölskyldurnar sem þá komu búa enn á Akureyri.

Nýleg rannsókn sem unnin var á vegum Háskólans á Akureyri sýnir að innflytjendum á Akureyri líður mjög vel, þeir upplifa bæinn öruggan og þægilegan, finnst umhverfið fallegt og telja að öll þjónusta sé til staðar. Stuðningur við innflytjendur er góður og rekur Akureyrarbær m.a. sérstaka upplýsinga- og ráðgjafarþjónustu fyrir íbúa af erlendum uppruna.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan