Akureyrarbær styrkir Verkefnasjóð HA

Eiríkur Björn og Eyjólfur rektor HA.
Eiríkur Björn og Eyjólfur rektor HA.

Í gær undirrituðu Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri samning um styrk Akureyrarbæjar við Verkefnasjóð Háskólans á Akureyri.

Styrknum er ætlað að styðja við ráðstefnuhald eða meiriháttar samkomur, útgáfu og kynningarstarfsemi, menningarstarf eða annað sem stjórn sjóðsins telur falla að reglum hans.

Úthlutun úr verkefnasjóðnum er í höndum þriggja manna stjórnar sem skipuða er af háskólaráði. Heimilt er að láta verkefni sem unnin eru í samstarfi við Akureyrarbæ, t.d. vegna sameiginlegra kynningarmála eða ráðstefnuhalds, njóta forgangs við úthlutun.

Akureyrarbær og Háskólinn á Akureyri hafa í röskan áratug átt samstarf af þessu tagi. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan