Akureyrarbær styður Vísindaskólann

Sigrún Stefánsdóttir og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri skrifa undir samninginn. Mynd: Kristj…
Sigrún Stefánsdóttir og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri skrifa undir samninginn. Mynd: Kristjana Hákonardóttir.

Akureyrarbær og Háskólinn á Akureyri hafa skrifað undir samning um styrk til Vísindaskóla unga fólksins. Markmið bæjarins með styrkveitingunni er að styðja við fjölbreytni í tómstundatilboðum til barna og gefa börnum á Akureyri tækifæri til þess að kynnast heimi vísinda og fræða.

Vísindaskóli unga fólksins fór af stað síðasta vor og þá sóttu um 90 börn á aldrinum 11-13 ára skólann. Viðbrögð þátttakenda voru afar góð og má gera ráð fyrir að margir þeirra komi aftur því nýtt námsefni verður í boði næsta sumar. Vísindaskólinn mun starfa vikuna 20.-24. júní.

Hópur starfsmanna Háskólans á Akureyri vann að þróun Vísindaskólans en verkefnið er fjármagnað að stórum hluta með styrkjum frá ýmsum félögum og samtökum. Sigrún Stefánsdóttir, talsmaður skólans, segir að viðbrögð samfélagsins hafi verið afar jákvæð og samningurinn við Akureyrarbæ sé ómetanlegur.

Lögð er áhersla á að námsefni Vísindaskólans tengist sem mest hefðbundnu námsframboði Háskólans. Að þessu sinni verður boðið upp á eftirfarandi þemu:

  • Dómstóll barnanna
  • Biophilia
  • Umhverfis jörðina
  • Tölvutækni og fréttaráp
  • Betra líf í hraustum líkama

Skólagjöld eru 22.500 kr. Innritun í skólann hefst í apríl en allar nánari upplýsingar og skráningu verður hægt að nálgast á heimasíðu skólans www.visindaskoli.is. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið visindaskoli@unak.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan