Áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta Akureyrarbæjar batnar

Tillögur aðgerðahóps um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar voru samþykktar á fundi bæjarráðs í gær, fimmtudaginn 19. maí. Samkvæmt tillögum hópsins, auk annarra breytinga, verður áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta sveitarfélagsins fyrir yfirstandandi ár 330 milljónum króna betri en gert var ráð fyrir í upphaflegri fjárhagsáætlun bæjarfélagsins fyrir árið 2016.

Í aðgerðahópnum sem hóf störf í byrjun janúar sátu oddvitar allra flokka sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn, auk bæjarstjóra og fjármálastjóra bæjarins. Hópnum var ætlað að leita leiða til að draga úr rekstrarhalla þegar á þessu ári og að leggja til aðgerðir sem mæta áætlaðri hagræðingu næstu ára, auka jafnvægi í rekstri sveitarfélagsins og stefna að sjálfbærum rekstri A-hluta Akureyrarbæjar.

Aðgerðahópurinn lagði tillögur sínar fram eftir að hafa rýnt í rekstur allra málaflokka sveitarfélagsins með það að leiðarljósi að draga sem minnst úr grunnþjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Lítið verður dregið úr framlögum bæjarins til fræðslumála, eða um tæplega hálft prósent á árinu 2016 og áætluð hagræðing í félagsþjónustu nemur 1,6% á árinu 2016 frá upphaflegri áætlun.

„Góð samvinna allra framboða einkenndi vinnu aðgerðahópsins og var lykillinn að þeirri sátt sem náðist um aðgerðirnar. Samhliða þeim aðgerðum sem gripið er til á yfirstandandi ári er lögð fram aðgerðaáætlun sem miðar að því að bæta framtíðarrekstur sveitarfélagsins. Vinna aðgerðahópsins hefur líka að mínu mati aukið yfirsýn okkar bæjarfulltrúa og er grunnur fyrir markvissari áætlanir og vonandi betri rekstur til lengri tíma litið,“segir Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar.

Aðgerðahópurinn vann tillögur sínar í samstarfi við embættismenn, aðra stjórnendur og nefndir sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að tillögur hópsins fyrir yfirstandandi ár komi til framkvæmda á næstu dögum, eftir fundi með öllum fastanefndum og stjórnendum Akureyrarbæjar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan