is Akureyri Missing description Thu, 23 Feb 2012 01:02:18 +0000 Moya 1.15.2 http://www.akureyri.is Ferðafólk frá Slóveníu

Hinn 26. júní nk. lendir Airbus 320 þota á Akureyrarflugvelli með allt að 180 ferðamenn frá Slóveníu á vegum Ferðaskrifstofunnar Nonna. Fólkið mun leggja leið sína um Norðurland og önnur landsvæði næstu 7 dagana áður en það snýr aftur til síns heima 3. júlí. Samstarfsaðilar í Slóveníu eru Adria Airways og ferðaskrifstofur sem hafa selt ferðir til Íslands í mörg ár. Það hefur kostað mikla fyrirhöfn að telja hina erlendu samstrafsaðila á að fljúga til Akureyrar því Reykjavík og Keflavíkurflugvöllur eru flestum efst í huga.]]>
Wed, 22 Feb 2012 15:04:00 +0000 http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/frettir/viewItem/ferdafolk-fra-sloveniu http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/frettir/viewItem/ferdafolk-fra-sloveniu
Kynjaverur á kreiki

Það hefur verið skrautlegt um að litast á götum Akureyrar í dag og ýmsar kynjaverur á kreiki. Hæglætisveður með dálítilli ofankomu hefur síst dregið úr ákafa skólakrakka sem arka á milli búða og syngja fyrir nammi. Kötturinn var sleginn úr tunnunni bæði á Glerártorgi og á flötinni fyrir neðan Samkomuhúsið. Söngurinn ómar um stræti og torg og allir eru í sólskinsskapi. Smellið á meðfylgjandi myndir til að sjá stærri útgáfur og fletta á milli þeirra.]]>
Wed, 22 Feb 2012 14:06:00 +0000 http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/frettir/viewItem/kynjaverur-a-kreiki http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/frettir/viewItem/kynjaverur-a-kreiki
Bíósýning í Hofi

Bíó Paradís í samstarfi við KvikYndi (Kvikmyndaklúbb Akureyrar) sýnir kvikmyndir á breiðtjaldi í bestu mögulegu hljómgæðum og færa þannig andrúmsloft kvikmyndanna í Hof. Í kvöld, 22. febrúar kl. 20, verður kvikmyndin Superclásico (Erkifjendur) sýnd en þessi eldfjöruga rómantíska kómedía frá leikstjóra Flammen og Citronen sló rækilega í gegn í Danmörku fyrr á árinu og var nýlega valin framlag Danmerkur til Óskarsverðlaunanna.]]>
Wed, 22 Feb 2012 09:51:00 +0000 http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/frettir/viewItem/biosyning-i-hofi http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/frettir/viewItem/biosyning-i-hofi
Öskudagurinn á Akureyri

Löng hefð er fyrir því á Akureyri að krakkar komi saman og slái köttinn úr tunnunni á öskudaginn. Það verður annars vegar gert á flötinni fyrir framan Samkomuhúsið kl. 10.30 og hins vegar á Glerártorgi kl. 13.30. Í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar ætla Norðurorka og Leikfélag Akureyrar að leiða saman hesta sína og bjóða krökkum í kattarslag á leikhúsflötinni kl. 10.30. Liðin sem slá tunnuna í sundur og slá köttinn úr henni fá hvort um sig fjóra miða á Gulleyjuna og sá sem vinnur búningasamkeppnina fær tvo miða á Gulleyjuna. Í Samkomuhúsinu verður síðan tekið vel á móti öllum syngjandi kátum sjóræningjum og landkröbbum. Krökkum verður boðið upp á svið til að syngja Öskudagssöngva og samkeppni verður um flottasta búninginn.]]>
Tue, 21 Feb 2012 13:39:00 +0000 http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/frettir/viewItem/oskudagurinn-a-akureyri-2 http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/frettir/viewItem/oskudagurinn-a-akureyri-2
Afmælisterta Akureyrar

Í morgun kynnti bakarameistarinn Andrés Magnússon í Bakaríinu við brúna til sögunnar afmælistertu Akureyrar, skreytta með afmælismerkinu en tertan verður á boðstólum í bakaríinu út árið og jafnvel lengur. Afmælisnefndin fékk við þetta tækifæri að bragða á tertunni og taldi hana afar ljúffenga og einkar saðsama. Bakaríið við brúna er fyrsta fyrirtækið á Akureyri sem nýtir sér 150 ára afmælismerkið á framleiðslu sína en eflaust munu fleiri fylgja í kjölfarið.]]>
Mon, 20 Feb 2012 14:38:00 +0000 http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/frettir/viewItem/150-ara-afmaelisterta http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/frettir/viewItem/150-ara-afmaelisterta