Unglingamóttakan er opin unglingum / ungu fólki á aldrinum 13 - 20 ára.
Móttakan er opin á þriðjudögum kl. 15 - 16 á 4. hæð Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri (inngangur mæðra-
og ungbarnaverndar). Ekki þarf að panta tíma og þjónustan er gjaldfrí.
Á unglingamóttökunni vinna Jón Torfi Halldórsson læknir og Þórdís Rósa Sigurðsdóttir
hjúkrunarfræðingur . Síminn er 460 4641 á opnunartíma móttökunnar.
Niðurstöður rannsókna sem teknar eru í unglingamóttöku:
Netfang fyrir rannsóknarniðurstöður: solveig@hak.ak.is
Ekki er gefið svar í tölvupósti nema ef gefið sé upp nafn og kennitala og að póstur sé sendur úr
tölvupóstfangi sem gefinn er upp í sjúkraskrá. Tölvupóstur er ekki fullkomlega öruggur samskiptamáti fyrir viðkvæmar
upplýsingar og því ekki hægt að tryggja fullkomna leynd. Óskir þú eftir svari með þessum máta er nauðsynlegt að gera
sér grein fyrir mögulegri hættu á að óviðkomandi lesi svarið.
Einungis eru gefnar upplýsingar um það hvort niðurstaða
sé jákvæð eða neikvæð.Gera má ráð fyrir að allt að viku taki að rannsaka sýni en fyrirspurnum svarað svo fljótt
sem auðið er.
Í unglingamóttökunni er reynt er að sinna þörfum þeirra sem eiga við tilfinningaleg vandamál að stríða,
kvíða, depurð, áfengis- og vímumál, einelti, kynsjúkdóma eða vilja ræða getnaðarvarnir og kynlífsvandamál. Fyrst og
fremst vonumst við til að móttakan mæti þörfum þeirra, sem ekki hafa talið sig geta nýtt þjónustu heilsugæslustöðvarinnar
með hefðbundnum hætti vegna opnunartímans og fyrirhafnar við að panta tíma.
Móttakan er ekki ætluð fyrir vottorðabeiðnir eða pestavandamál. Þeim skal beint til heimilislæknis.
Markmið með unglingamóttöku er að vinna að bættum lífsgæðum og aðstæðum unglinga og ungs fólks með því
að:
* hvetja með fræðslu til bættrar sjálfsmyndar, sjálfsöryggis og stuðla að jákvæðu félagsumhverfi unglinga,
* draga úr ótímabærum þungunum ungra kvenna með því að gera getnaðarvarnir aðgengilegri ásamt fræðslu um
siðfræði kynlífs og barneigna,
* draga úr afleiðingum kynsjúkdóma s.s. ófrjósemi,
* bæta geðheilbrigði með aukinni þjónustu til þeirra sem eiga við tilfinningaleg vandamál að stríða, kvíða, depurð og
einelti,
* draga úr reykingum ungs fólks, áfengis-og vímuefnaneyslu,
* ungt fólk og unglingar á Akureyri þekki og nýti sér aðgengi heilbrigðis- og félagsþjónustu Akureyrar.
Áfangaskýrsla unglingamóttöku 2000-2004: Opnið hér
Nýrri upplýsingar um unglingamóttöku er að finna í ársskýrslum HAK
Vakin er athygli unglinga í neyð á veffangi Rauðakrosshússins í Reykjavík:
Hjálparsími Rauðakrossins: 1717 Er lífið erfitt - segðu okkur - við hlustum
Tenglar:
Sálræn skyndihjálp fyrir unglinga: http://www.redcross.is/efbara
Unglingavefur Doctor.is: http://www.doktor.is/hvadermalid/
Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir: http://www.fkb.is/
Bæklingur um kynsjúkdóma: Sannleikurinn er sagna bestur

