Foreldrafræðsla fyrir nýorðna foreldra.
Þessi námskeið eru framhald af foreldrafræðslu á meðgöngunni og það er sérstaklega ætlað foreldrum fyrstu barna, en allir nýorðnir foreldrar eru velkomnir.
Foreldranámskeiðin eru í þremur hlutum:
Fyrsti tími:
Núna hittumst við aftur eftir fæðingu og höfum nýja barnið með. Farið verður í það hvernig lífið í nýju fjölskyldunni gengur og hvernig er að vera fjölskylda með lítið barn. Hættur sem steðja að og tækifæri sem bjóðast. Hópnum er skipt í mömmu- og pabbahópa og málin rædd.
Þessi tími er í umsjón fjölskylduráðgjafa, heimilislæknis, hjúkrunarfræðings og ljósmóður.
Annar tíminn:
Helstu barnasjúkdómar, veikindi og slys. Hvað er til ráða ef barnið veikist og hvernig lýsa helstu kvillar sér. Mikilvægi slysavarna þannig að barnið fari sér ekki að voða.
Þessi tími er í umsjón barnalæknis og hjúkrunarfræðings.
Þriðji tíminn:
Foreldrahlutverkið: hverjir eru helstu álagsþættir sem fylgja nýorðnum foreldrum? Hvað er hægt að gera til að viðhalda góðu parsambandi eftir að barn bætist í hópinn?
Þessi tími er í umsjón fjölskylduráðgjafa.

