Heilsugæsla í Síðuskóla
Heilsugæslu í grunnskólum er sinnt af hjúkrunarfræðingum og læknum frá Heilsugæslustöðinni á Akureyri.
Hjúkrunarfræðingur Síðuskóla er Dóra Björk Jóhannsdóttir, netfang: dorajo@akmennt.is
Skólalæknir Síðuskóla er Þorgils Sigurðsson
Nemendum Síðuskóla gefst kostur á að leita til skólahjúkrunarfræðings frá kl. 10 – 12 mánudaga og miðvikudaga – föstudaga.
Heimasíða Síðuskóla
Hlutverk heilsugæslu í skólum
Hlutverk heilsugæslu í skólum er að sinna heilsuvernd nemenda. Þetta er gert með reglubundum skimunum og eftirliti, fræðslu og teymisvinnu kringum einstaka mál.
Heilsugæsla í skólum er framhald ung- og smábarnaverndar. Starfsemi skólaheilsugæslu er skv. lögum, reglugerðum og tilmælum er um hana gilda. Hún er meðal annars fólgin í reglulegum heilsufarsathugunum, ónæmisaðgerðum, heilbrigðisfræðslu og ráðgjöf til nemenda, foreldra og starfsfólks skólans. Á heimasíðu Miðstöðvar heilsuverndar barna http://www.heilsugaeslan.is/?PageID=24 má finna nánari upplýsingar um heilsugæslu í skólum og ráðleggingar til foreldra um heilbrigðistengd málefni.
Þróun og breytingar í samfélaginu undanfarin ár hafa kallað á breytingar varðandi viðfangsefni og áhersluþætti skólaheilsugæslunnar. Um áhersluþætti skólaheilsugæslunnarmá lesa nánar á áðurnefndri heimasíðu Miðstöðvar heilsuverndar barna.
Skipulögð heilbrigðisfræðsla og hvatning til heilbrigðra lífshátta á nú að jafnaði að taka meiri tíma af starfi skólahjúkrunarfræðings. Byggt er á hugmyndafræðinni um 6-H heilsunnar sem er samstarfsverkefni skólaheilsugæslunnar og Lýðheilsustöðvar. Eftir fræðslu fær barnið fréttabréf með sér heim. Þá gefst foreldrum kostur á að ræða við börninum það sem þau lærðu og hvernig þau geti nýtt sér það í daglegu lífi.
Slys og óhöpp á skólatíma
Það er ekki hlutverk skólahjúkrunarfræðings að vera með slysamóttöku í skólanum. Eftir sem áður veitir skólahjúkrunarfræðingur fyrstu hjálp þegar alvarlegri slys verða í skólanum og er starfsfólki skólans til stuðnings og ráðgjafar þegar upp koma veikindi og slys hjá nemendum á þeim tíma sem hjúkrunarfræðingur er við störf.
Ef smáslys eða óhapp verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp.
Þurfi nemandi að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu foreldrar/forrráðamenn fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í foreldra á skólatíma barnsins.
Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af skólaheilsugæslunni. Foreldrum er bent á að snúa sér til heimilslæknis og Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri með heilsufarsmál sem ekki teljast til skólaheilsugæslu.
Foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð á líðan og heilbrigði barna sinna. Góð samvinna og gott upplýsingaflæði er mikilvægt til að starfsfólk skólaheilsugæslu geti sinnt starfi sínu sem best. Því eru foreldrar hvattir til að hafa samband við hjúkrunarfræðing skólans ef einhverjar breytingar verða hjá barninu sem gætu haft áhrif á andlegt, líkamlegt eða félagslegt heilbrigði þess. Að sjálfsögðu er fyllsta trúnaðar gætt um mál einstakra nemenda.
Vilji foreldrar/forráðamenn fá upplýsingar um einstök atriði, hvað varðar heilsugæsluna er þeim velkomið að hafa samband við hjúkrunarfræðinginn.
Ef foreldrar/forráðamenn vilja ekki að börn þeirra taki þátt í einhverju af því sem skólaheilsugæslan bíður nemendum upp á, eru þeir beðnir um að hafa samband við skólahjúkrunarfræðing sem fyrst. Ef ekkert heyrist frá foreldrum verður það skoðað sem samþykki.
Lyfjagjafir í skólum
Í tilmælum frá landlækni um lyfjagjafir í grunnskólum frá maí 1999 kemur meðal annars fram að foreldrum/forráðamönnum ber að afhenda hjúkrunarfræðingum þau lyf sem börn/unglingar eigi að fá í skólanum og að börn/unglingar skuli aldrei vera sendiboðar með lyf. Sjá nánari upplýsingar á http://www.landlaeknir.is/?PageID=350.
Foreldrar /forráðamenn þeirra barna/unglinga sem þurfa að taka lyf á skólatíma eru vinsamlega beðnir að hafa samband við hjúkrunarfræðinga skólans til skrafs og ráðagerða um hvernig best verði komið til móts við þessi tilmæli.
Lús
Við viljum minna fólk á að skoða reglulega hár barna sinna og láta skólahjúkrunarfræðing vita ef lús finnst. Við verðum að standa saman og gera viðeigandi ráðstafanir til að hefta útbreiðslu þessa aðskotadýrs. Skólaheilsugæslan hvetur foreldra til að hafa samband við skólaheilsugæslunnar nú í vetur sem endranær.
Nánari upplýsingar um lúsina er að finna á http://www.heilsugaeslan.is/?PageID=1350 og http://www.landlaeknir.is/?PageID=831.

