Veikindi og slys

Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp.

Þurfi nemandi að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu foreldrar/forrráðamenn fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í foreldra á skólatíma barnsins.
Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af skólaheilsugæslunni.

Langveik börn

Mikilvægt er að skólaheilsugæslan viti af börnum sem eru með langvinnan og/eða alvarlegan sjúkdóm, svo sem sykursýki, ofnæmi, flogaveiki og blæðingarsjúkdóma. Þessum börnum sinnir skólaheilsugæslan í samráði við foreldra/forráðamenn barnsins.
Þjónustan getur meðal annars falist í:

  • Umsjón og eftirlit með umönnun barna innan skólans þegar þess er þörf.
  • Vera tengiliður skólans við foreldra og meðferðaraðila þegar við á.
  • Taka þátt í heilsufarseftirliti nemenda þegar meðferð krefur.
  • Umsjón með lyfjagjöfum
  • Útskýra fyrir starfsfólki skóla meðferð, lyfjagjöf og fleira eftir þörfum með leyfi viðkomandi foreldra.
  • Fræða starfsfólk skólans, nemendur og foreldra um einstaka sjúkdóma og/eða fatlanir með leyfi viðkomandi foreldra.
  • Stuðningur við barn og fjölskyldu þess.
  • Stuðningur og ráðgjöf við starfsfólk skólans.