Heilsugæslan sinnir þolendum kynferðisofbeldis og kynbundins ofbeldis aðallega í gegnum fjölskylduráðgjöf með viðtölum og sjálfstyrkingu. Heimilislæknar vísa gjarnan í fjölskylduráðgjöf þegar þessi mál koma upp og það er mikil samvinna milli þessara aðila. Mál af þessu tagi koma oft upp í tengslum við meðgöngu og í ungbarnavernd og þá felst samvinna þeirra sem að koma í því að finna þau úrræði sem henta hverju sinni. Þolendur kynferðisofbeldis og kynbundins ofbeldis eru hvattir til að hafa samband við fjölskylduráðgjöfina á HAK.
Á Akureyri eru ýmis fleiri úrræði sem nánar má finna hér.

