Heilsugæslustöðin á Akureyri

  Skjólstæðingar Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri geta endurnýjuð lyfin sín í símatíma heimilislæknis eða í símatíma læknaritara

Flýtilyklar

Endurnýjun lyfja

 

Skjólstæðingar Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri geta endurnýjuð lyfin sín í símatíma heimilislæknis eða í símatíma læknaritara / hjúkrunarfræðinga.

 Læknaritarar og hjúkrunarfræðingar koma upplýsingum til viðkomandi læknis, sem ávísar síðan lyfjunum eftir að hafa metið beiðnina.

Einnig er hægt að senda beiðni um lyfjaendurnýjun með tölvupósti í netfang: le@hak.ak.is

Með tölvuósti þarf að senda upplýsingar um:
Nafn,
Kennitölu,
Símanúmer,
Heiti lyfs,
Skammtastærð,
Ástæðu lyfjatöku,
Nafn heimilislæknis.


Lyfin verða send í rafræna  lyfjagátt og hægt er að sækja lyfin í öll apótek í landinu.

Athugið að aðeins er hægt að fá endurnýjuð lyf með tölvupósti sem fólk hefur áður fengið skrifað upp á hjá Heilsugæslustöðinni á Akureyri.

Að öllu jöfnu eru ekki afgreidd  sýklalyf, sterk verkjalyf, Ritalin, Lyrica og skyld lyf. Sjúklingum er bent á símatíma heimilislæknis til að endurnýja þessi lyf.

Fólk er hvatt til að sýna fyrirhyggju og óska eftir endurnýjun lyfja tímanlega því það getur tekið allt að 2-3 daga að fá lyfið afgreitt með þessum hætti þó reynt verði að afgreiða sem mest samdægurs.

 

Athugið að allur póstur sem sendur er á þetta netfang er sendur á eigin ábyrgð.

Öruggast er að senda aldrei viðkvæmar persónuupplýsingar með tölvupósti

 


 

Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 23:43
+0.9°SSV 2 m/s
  • Hausmynd - heilsugæsla

    Heilsugæslustöðin á Akureyri

    Markmið Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri er að stuðla með öllum tiltækum ráðum að því að efla, bæta og viðhalda heilbrigði sem eykur vellíðan og velferð íbúanna á þjónustusvæði stöðvarinnar.

    Sími Heilsugæslunnar er 460 4600

 

Heilsugæslustöðin á Akureyri – Hafnarstræti 99, 3.-6. hæð – 600 Akureyri – Simi 460 4600 – Fax 461 2605 – hak@hak.ak.is