Móttaka hjúkrunarfræðinga

Móttakan er á 3. og 6. hæð á heilsugæslustöðinni Hjúkrunarfræðingar í móttöku sjá um ýmis verk s.s.  saumatökur, sárameðferð, vörtumeðferð, vinna með

Flýtilyklar

Móttaka hjúkrunarfræðinga

Móttakan er á 3. og 6. hæð á heilsugæslustöðinni

Hjúkrunarfræðingar í móttöku sjá um ýmis verk s.s.  saumatökur, sárameðferð, vörtumeðferð, vinna með læknum að ýmsum smáaðgerðum eins og t.d. blettatökum. Hjúkrunarfræðingarnir eru til ráðgjafar og hafa umsjón með hjartalínuritstökum og öndunarmælingum

Hjúkrunarfræðingarnir Sigríður Jónsdóttir og Sólveig H. Jónsdóttir eru með móttöku á skiptistofunni. Fólk getur leitað beint til þeirra eða til heimilislækna eftir því hvert meinið er. Hjúkrunarfræðingar sjá meðal annars um sáraskiptingar, bólusetningar, ráðgjöf og fræðslu vegna þvagleka og næturvætuvanda barna.

Hjúkrunarfræðingar eru með símatíma kl. 10-11 í síma 460 4635 daglega. Þar er hægt að fá ýmiss konar ráðgjöf og endurnýjun lyfja sem fólk er stöðugt á. Erindi varðandi fjarvista- og sjúkradagpeningavottorð eru þó einungis afgreidd á stofum og í símatíma lækna.

Tímapantanir á aðgerðastofu eru daglega frá kl. 8:00-15:00: í síma 460 4630 og 460 4600.

Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 23:43
+0.9°SSV 2 m/s
  • Hausmynd - heilsugæsla

    Heilsugæslustöðin á Akureyri

    Markmið Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri er að stuðla með öllum tiltækum ráðum að því að efla, bæta og viðhalda heilbrigði sem eykur vellíðan og velferð íbúanna á þjónustusvæði stöðvarinnar.

    Sími Heilsugæslunnar er 460 4600

 

Heilsugæslustöðin á Akureyri – Hafnarstræti 99, 3.-6. hæð – 600 Akureyri – Simi 460 4600 – Fax 461 2605 – hak@hak.ak.is