Mæðravernd á heilsugæslustöðinni (HAK)

Í mæðravernd er verðandi foreldrum boðið upp á að koma reglulega til viðtals og skoðunar hjá ljósmóður og í sumar komur einnig til heimilislæknis. Alla jafna koma verðandi foreldrar í fyrsta skiptið þegar eru liðnar 12-14 vikur af meðgöngunni og síðan á 4-8 vikna fresti allt eftir aðstæðum hjá hverjum og einum.

Reynt er að leggja áherslu á það að sama ljósmóðirin sinni fjölskyldunni allan meðgöngutímann og heimilislæknir fjölskyldunnar tekur einnig þátt í mæðraverndinni, meðal annars í tengslum við Nýja barnið sem beinist að því að meta þörf verðandi foreldra fyrir aukna þjónustu í tengslum við meðgönguna.

Fyrsta skoðun:

  • Verðandi móðir (ásamt verðandi föður) fer í viðtal og skoðun hjá ljósmóður og Það tekur um klukkustund. Gert er ráð fyrir viðtali hjá heimilislækni í annari skoðun.

  • Í viðtalinu er almennt heilsufar, lífsstíll og líðan könnuð og rætt um væntingar til meðgöngunnar. Meðgöngulengd reiknuð.  

  • Hlustað eftir hjartslætti fósturs, blóðþrýstingur er mældur og þyngd móður athuguð. 

  • Tekin eru blóðsýni til að athuga magn blóðrauða, blóðflokk, mótefni gegn rauðum hundum, sárasótt, lifrarbólgu og alnæmi ef ástæða þykir til.  

  • Aðrar blóðrannsóknir eru gerðar eftir þörfum.   

  • Þvagsýni er athugað fyrir próteini og sykri.

  • Allt er varðar meðgönguna er skráð í meðgönguskrá / mæðraskrá.


Markmið mæðraverndar eru:
* Að stuðla að sem bestri líðan foreldra og barns á meðgöngutímanum og eftir fæðinguna.
* Að greina áhættuhópa sem þurfa aukna þjónustu og sinna þörfum þeirra sérstaklega.
* Að fyrirbyggja og greina líkamleg og andleg frávik hjá mæðrum á meðgöngutímanum og gera viðeigandi ráðstafanir.

Fæðingarlæknar taka þátt í mæðraverndinni þar sem öllum verðandi mæðrum er boðið upp á sónarskoðun í kringum 20. viku meðgöngu og sinna þeir eftirliti kvenna, sem af einhverjum ástæðum þurfa sérhæft eftirlit á meðgöngu