Forburðarskimun

Forburðarskimun: Á kvennadeild FSA er boðið upp á forburðarskimun við 11-14 viku meðgöngu, þar sem leitað er að litningagöllum hjá fóstrum, t.d. Down´s

Flýtilyklar

Forburðarskimun

Forburðarskimun:
Á kvennadeild FSA er boðið upp á forburðarskimun við 11-14 viku meðgöngu, þar sem leitað er að litningagöllum hjá fóstrum, t.d. Down´s heilkenni. Um er að ræða líkindamat en ekki fullkomna greiningu.
Í fáum tilvikum finnast fósturgallar sem getið valdið áhyggjum og krefjast þess að foreldrar þurfa að taka erfiðar ákvarðanir varðandi framhald meðgöngunnar.
Þar sem þessi skoðun er val foreldra þá ættu þeir, sem síður geta hugsað sér að lenda í þessari aðstöðu, ekki að fara í þessa skoðun.

Tímapantanir fyrir þessa rannsókn er á þriðjud. miðvikud. og fimmtud. kl. 13-14 í síma 463 0134. Konur greiða sjálfar ómskoðun og blóðprufu.
Bent er á nánari upplýsingar á vefsíðu Landspítalans.
Eins er hægt að leita nánari upplýsinga hjá ljósmæðrum í mæðravernd HAK.

Foreldrum sem aðallega óska eftir að sjá fóstrið eða fá mynd af því er bent á þjónustu fæðingalækna á stofum þeirra.

Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 23:39
+0.9°SSV 2 m/s
  • Hausmynd - heilsugæsla

    Heilsugæslustöðin á Akureyri

    Markmið Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri er að stuðla með öllum tiltækum ráðum að því að efla, bæta og viðhalda heilbrigði sem eykur vellíðan og velferð íbúanna á þjónustusvæði stöðvarinnar.

    Sími Heilsugæslunnar er 460 4600

 

Heilsugæslustöðin á Akureyri – Hafnarstræti 99, 3.-6. hæð – 600 Akureyri – Simi 460 4600 – Fax 461 2605 – hak@hak.ak.is