Mæðravernd

Staðsett á 4. hæð á heilsugæslustöðinni

Opnunartími:
Mæðraverndin er opin alla daga, tímapantanir í mæðravernd í síma: 460 4640 á milli kl. 10:00 og 12:00.
Ljósmæður eru við frá kl. 8 - 12 alla daga, suma daga lengur.
Símatími er alla virka daga kl. 10-12 í síma 460 4600. Ritari gefur tíma, veitir upplýsingar og tekur skilaboð til ljósmæðra.

Ljósmæður og ritari:
Deildarstýra mæðraverndar er Hulda Pétursdóttir ljósmóðir (huldape@hak.ak.is)  
Aðrar ljósmæður í mæðravernd eru:   
Elísabeth Zitterbart (elisabet@hak.ak.is)
Helga Jóhannsdóttir                                                                                                          
Málfríður Þórðardóttir
(malla@hak.ak.is)
Ritari er Hildur Larsen.

Mæðravernd á heilsugæslustöðinni (HAK)
Í mæðravernd er verðandi foreldrum boðið upp á að koma reglulega til viðtals og skoðunar hjá ljósmóður og í sumar komur einnig til heimilislæknis. Alla jafna koma verðandi foreldrar í fyrsta skiptið þegar eru liðnar 13-15 vikur af meðgöngunni og síðan á nokkurra vikna fresti allt eftir aðstæðum hjá hverjum og einum.

Reynt er að leggja áherslu á það að sama ljósmóðirin sinni fjölskyldunni allan meðgöngutímann og heimilislæknir fjölskyldunnar tekur einnig þátt í mæðraverndinni meðal annars í tengslum við Nýja barnið sem beinist m.a. að því að meta þörf verðandi foreldra fyrir aukna þjónustu í mæðravernd.

Markmið mæðraverndar eru:
* Að stuðla að sem bestri líðan foreldra og barns á meðgöngutímanum og eftir fæðinguna.
* Að greina áhættuhópa sem þurfa aukna þjónustu og sinna þörfum þeirra sérstaklega.
* Að fyrirbyggja og greina líkamleg og andleg frávik hjá mæðrum á meðgöngutímanum og gera viðeigandi ráðstafanir.

Fæðingarlæknar taka þátt í mæðraverndinni þar sem öllum verðandi mæðrum er boðið upp á sónarskoðun í kringum 20. viku meðgöngu og sinna þeir eftirliti kvenna, sem af einhverjum ástæðum þurfa sérhæft eftirlit á meðgöngu.

Fræðsluefni:

Andleg líðan á meðgöngu

Áfengi, vímuefni og meðganga

Áfengi vímuefni og meðganga á 7 tungumálum

Brjóstagjöf.is

Fólat fyrir allar konur sem geta orðið barnshafandi

Fæðingarþunglyndi

Fæðingarþunglyndi, myndband nema í sálfræði við Menntaskólann á Akureyri, unnið í samvinnu við fjölskylduráðgjöf HAK.

Fæðingin

Geislun á meðgöngu

Heimaþjónusta ljósmæðra

Hlustun hjartsláttar - mat á líðan barns í fæðingu

K-vítamín fyrir nýbura

Kláði á meðgöngu

Lengd meðganga

Líkamsþjálfun á meðgöngu

Matur og meðganga

Matur og meðganga á 7 tungumálum

Meðgangan

Meðgöngukvillar - hvað er til ráða

Ráðleggingar um mataræði

Reykingar og meðganga

Reykingar og meðganga á 7 tungumálum

Stuðningur og yfirseta í fæðingu

Val á fæðingarstað

Vatnsfæðingar

Venjulega góður matur á meðgöngu

Verkjameðferð án lyfja

Verkjameðferð með lyfjum

Vímuefni og meðganga

Welcome_to antenatal care

Þriðja stig fæðingar


Ýmsir gagnlegir tenglar:


Fædingarorlof.is

Fjölvaki: Vefur fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna

Fjölmenningasetur: Vefur með ýmsum upplýsingum um Ísland og íslenskt samfélag á 8 tungumálum.

Ljósmóðir.is

Heilsuvefurinn: 6h.is/

Miðstöð mæðraverndar.

Heilsugæslan.is - fræðsluefni um meðgöngu, ungbarnið og fleira