Tímar hjá læknum

Bókaðir tímar hjá heimilislæknum (æskilegast):Fólk er hvatt til að bóka tíma hjá heimilislækni sínum með öll erindi. Þeir sem ekki eiga fastan

Flýtilyklar

Tímar hjá læknum - Hvernig er best að leita eftir læknisaðstoð?

Bókaðir tímar hjá heimilislæknum (æskilegast):
Fólk er hvatt til að bóka tíma hjá heimilislækni sínum með öll erindi. Þeir sem ekki eiga fastan heimilislækni geta bókað tíma hjá hvaða lækni sem þeir kjósa sér. Tekið er við tímapöntun í síma: 460 4600.

Símatímar:
Heimilislæknar eru með símatíma daglega, sem ætlaðir eru fyrir fljótafgreidd erindi og fyrirspurnir, sjá símaþjónustu

Ritarar taka við beiðnum um endurnýjun lyfseðla kl. 9-11 daglega í síma 460 4635.

Bráðadagvakt:
Ætluð erindum sem eru það brýn að ekki er hægt að bíða eftir næsta lausa bókuðum tíma hjá heimilislækni. Bráðadagvaktin er klukkan 15-16 og sjá tveir læknar um hana daglega. Aðeins er hægt að afgreiða 20 manns á dag í þessum tímum.

Bráðamóttaka vakthafandi heimilislæknis á slysadeild FSA:
Heimilislæknar hafa utan dagvinnutíma aðstöðu fyrir bráð veikindi sem krefjast tafarlausrar læknisþjónustu á slysadeild FSA. Þar er móttaka bráðveikra  kl. 17-21 virka daga og kl. 10-12 og 14-16 á frídögum.
Vaktlæknar sinna bráðum útköllum og vitjunum og geta þurft að fara frá auglýstri móttöku á opnunartíma. Á nóttunni svara hjúkrunarfræðingar slysadeildar í vaktsíma og gefa símtöl áfram til vaktlæknis eftir þörfum.
Vaktsími er 848 2600 fyrir bráðaerindi.
Bráðaerindi á dagvinnutíma eru afgreidd í síma 460 4600 og þá af viðkomandi heimilislækni.


 

Athugið að Slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri er opin 24 tíma á sólarhring allt árið um kring. Þjónusta slysadeildar er ætluð slösuðum og bráðveikum. Þar er öllum sjúklingum sinnt sem hafa brýn vandamál sem ekki er hægt að sinna síðar af heilsugæslulæknum.
Mikilvægt er að fólk noti þjónustu heilsugæslustöðvarinnar þegar þess er kostur.


 

Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 23:37
+0.9°SSV 2 m/s
  • Hausmynd - heilsugæsla

    Heilsugæslustöðin á Akureyri

    Markmið Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri er að stuðla með öllum tiltækum ráðum að því að efla, bæta og viðhalda heilbrigði sem eykur vellíðan og velferð íbúanna á þjónustusvæði stöðvarinnar.

    Sími Heilsugæslunnar er 460 4600

 

Heilsugæslustöðin á Akureyri – Hafnarstræti 99, 3.-6. hæð – 600 Akureyri – Simi 460 4600 – Fax 461 2605 – hak@hak.ak.is