Skjólstæðingar Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri geta endurnýjuð lyfin sín í símatíma heimilislæknis eða í símatíma læknaritara.
Læknaritarar taka við beiðnum um endurnýjun lyfja í símatíma kl. 9 - 10:30 daglega í síma 460 4635. Aðeins er mælt með þessari leið ef viðkomandi hefur áður fengið þessum lyfjum ávísað af heimilislæknum. Þeir koma upplýsingum til viðkomandi læknis, sem ávísar síðan lyfjunum eftir að hafa metið beiðnina.
Einnig er hægt að senda beiðni um lyfjaendurnýjun með tölvupósti í netfang: le@hak.ak.is
Með tölvuósti þarf að senda upplýsingar um:
Nafn,
Kennitölu,
Heiti lyfs,
Skammtastærð.
Athugið að tölvupóstur telst ekki öruggur samskiptamáti varðandi persónuupplýsingar og telji fólk þetta viðkvæmar upplýsingar er því bent á símatíma.
Einungis er hægt að endurnýja lyf með tölvupósti sem fólk hefur áður fengið skrifað upp á hjá læknum frá Heilsugæslustöðinni á Akureyri.
Að öllu jöfnu eru ekki afgreidd sýklalyf, sterk verkjalyf, Ritalin, Lyrica og skyld lyf. Sjúklingum er bent á símatíma heimilislæknis til að endurnýja þessi lyf.
Fólk er hvatt til að sýna fyrirhyggju og óska eftir endurnýjun lyfja tímanlega því það getur tekið allt að 2-3 daga að fá lyfið afgreitt með þessum hætti þó reynt verði að afgreiða sem mest samdægurs.
Athugið að allur póstur sem sendur er á þetta netfang er sendur á eigin ábyrgð.

