Bráðadagvakt

Ef ekki er hægt að bíða með heilsufarserindi til næsta lausa tíma heimilislæknis þá er hægt að nýta svo kallaða bráðadagvakt. Hún er opin á  3ju og 6. hæð daglega kl 15.

Unnt er að afgreiða 10 manns á hvorri hæð í þessum tíma, eða 20 manns samtals. Ekki er hægt að bóka í þessa tíma en byrjað er að skrá sjúklinga um kl. 14:30.  Gert er ráð fyrir bráðum erindum sem taka stuttan tíma (5 - 10 mín) og vottorð eru ekki afgreidd á bráðadagvakt.

Ef svo illa vill til að fleiri þurfa á mjög brýnni læknisþjónustu að halda þá er viðkomandi bent á bráðmóttöku vakthafandi heimilislæknia á slysadeild FSA.
Þeir eru með móttöku á slysadeildinni kl. 17-21 virka daga og kl. 10-12 og 14-16 á frídögum, sjá Bráðamóttöku heimilislækna á FSA

Upplýsingar til ferðamanna