Við heilsugæslustöðina eru starfandi 11 sérfræðingar í heimilislæknum og auk þeirra eru hér mest allt árið læknakandidatar en þeir eru í 3 mánuði á heilsugæslu á lokaárinu til að ljúka námi í læknisfræðum.
Heimilislæknar hafa viðtalstíma sem eru 20 mín. hver. Tímapöntun fer fram í síma 460 4600. Ef erindi eru bráðaðkallandi og ekki er hægt að bíða eftir tíma hjá lækni þá er bráðadagvakt alla daga á 3. og 6. hæð kl. 15. Þar er hægt að taka á móti 10 sjúklingum á hvorum stað. Ekki er hægt að bóka í bráðadagvakt en byrjað er að skrá sjúklinga um kl. 14:30. Gert er ráð fyrir bráðum erindum á bráðadagvakt sem taka stuttan tíma (5-10 mín), vottorð eru ekki afgreidd á bráðadagvakt.
Símatímar eru daglega og eru ætlaðir fyrir fljótafgreidd erindi, sjá símaþjónusta.
Heimilislæknar sinna vaktþjónustu og taka á móti bráðveikum á slysadeild FSA kl. 17-21 virka daga og kl.
10-12 og 14-16 á frídögum. Vaktlæknar sinna útköllum og vitjunum á sama tíma.
Á nóttunni svara hjúkrunarfræðingar slysadeildar í vaktsíma og gefa símtöl áfram til vaktlæknis eftir þörfum.
Vaktsími er 848 2600 fyrir bráðaerindi.
Bráðaerindi á dagvinnutíma eru afgreidd í síma 460 4600 og þá af viðkomandi heimilislækni.
Heimilislæknar taka þátt í heilsuvernd, s.s. mæðravernd, ungbarnavernd og heilsugæslu í skólum.
Skráning á heilsugæslustöð
Í þeim tilvikum þegar ekki er gægt að bjóða fólki fastan heimilislækni gefst fólki kostur á að skrá sig formlega á heilsugæslustöðina. Þeim einstaklingum gefst kostur á að bóka tíma hjá hvaða lækni sem þeir kjósa sér og sækja alla þjónustu sem heilsugæslan hefur upp á að bjóða.
Við skráningu á heilsugæslustöðina þarf umsækjandi að koma á 3. hæð á stöðinni og undirrita heimild um flutning sjúkraskrárgagna.
Fylla þarf út og undirrita umsóknareyðublað, sem má fá í afgreiðslunni á 3. hæð eða fylla út eftirfarandi eyðublað:
Útfylltar umsóknir má afhenda á HAK eða senda sem viðhengi á netfangið: hak@hak.ak.is
Skráning á heimilislækni
Æskilegast er að fjölskyldur og einstaklingar hafi ákveðinn heimilislæki, sem hefur yfirsýn og umsjón með þeirra málum.
Þær fjölskyldur og einstaklingar á upptökusvæði HAK, sem ekki hafa fastan heimilislækni, geta skráð sig hjá ákveðnum
heimilislæknum, svo fremi sem einhver læknir hafi laus pláss fyrir nýja skjólstæðinga.
Fylla þarf út og undirrita umsóknareyðublað, sem má fá í afgreiðslunni á 3. hæð eða fylla út eftirfarandi
eyðublað: Umsokn_um_heimilislaekni
Útfylltar umsóknir má afhenda á HAK eða senda sem viðhengi á netfangið: hak@hak.ak.is
Því miður er ekki hægt að bjóða upp á skráningu hjá heimilislækni en vinsamlegast skráið ykkur á heilsugæslustöðina.

