Heimahjúkrun er heimahjúkrunarþjónusta sem veitt er á vegum heilsugæslustöðva fyrir þá einstaklinga sem hennar þarfnast sbr. 12. gr. reglugerðar um heilsugæslustöðvar nr. 787/2007.
Markmiðið með heimahjúkrun er að gera sjúklingum kleift að búa sem lengst á eigin heimili þrátt fyrir veikindi, heilsubrest eða skerta
færni.
Heimahjúkrun er fyrir einstaklinga á öllum aldri sem búa í heimahúsum og eru í þörf fyrir hjúkrun til að geta lifað sem eðlilegustu lífi. Forsenda heimahjúkrunar er háð fjárhagsáætlun hverju sinni.
Forstöðumaður heimahjúkrunar er Nína Hrönn Gunnarsdóttir, hún er í tímabundnu leyfi og í hennar stað er Helga
Hákonardóttir (helga@hak.ak.is) . Deildarstjóri er Kamilla Þorsteinsdóttir (kamilla@hak.ak.is).
Símatími hjá forstöðumanni er á milli kl. 11:00-12:00 í síma: 461 2492.
Forstöðumaður hefur aðsetur á 5. hæð Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri.
Skipulag heimahjúkrunar byggir á þremur teymum. Í hverju teymi er hjúkrunarfræðingur teymisstjóri ásamt öðrum hjúkrunarfræðingi og sjúkraliðum. Einstaklingar sem njóta þjónustu heimahjúkrunar tilheyra ákveðnu teymi. Þetta skipulag auðveldar yfirsýn yfir þarfir og þjónustu sjúklinganna og hægt er að takmarka fjölda starfsmanna sem fara í vitjanir til hvers og eins.
Heimahjúkrun hefur aðsetur í sömu hverfisstöðvum og heimaþjónusta, í Íþróttahöllinni (vidil@hak.ak.is) og í Þjónustumiðstöðinni í Bugðusíðu (bjarg@hak.ak.is).
Heimahjúkrun starfar við hlið heimaþjónustunnar, og skipuleggur dagleg störf í samvinnu við starfsfólk í heimaþjónustu. Heimahjúkrun er byggð á vitjunum. Hjúkrunarfræðingur kemur í fyrstu vitjun og metur hjúkrunarþörfina. Hjúkrunarfræðingur ásamt sjúkraliðum annast alla þá hjúkrun, líkamlega sem andlega, sem við á og hægt er að veita við þær aðstæður sem heimili býður upp á. Heimahjúkrun er veitt án endurgjalds.
Skammtímadvöl
Heimahjúkrun skipuleggur skammtímadvöl fyrir einstaklinga sem metnir eru í þörf fyrir tímabundna þjónustu á hjúkrunarheimili vegna hjúkrunar, hvíldar, styrktar og umönnunar. Dvölin fer fram á Öldrunarheimili Akureyrar. Vinsamlegast kynnið ykkur reglur um skammtímadvöl sem eru hér neðan við sem og umsóknareyðublöð. Umsóknum skal skilað til heimahjúkrunar á Heilsugæslustöðinni á Akureyri, Hafnarstræti 99, 600 Akureyri.
Reglur um skammtímadvöl - samþykkt í bæjarstjórn 21. september 2011.
Umsókn um skammtímadvöl - vinsamlegast prentið út og sendið til heimahjúkrunar.

