Útibú heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands

Útibúið er á 4. hæð heilsugæslustöðvarinnar. Starfsmaður er Unnur Ósk Unnsteinsdóttir, og sér hún um tímapantanir í síma 460 4644 kl. 13:30-15:30, en á

Flýtilyklar

Útibú heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands

Útibúið er á 4. hæð heilsugæslustöðvarinnar. Starfsmaður er Unnur Ósk Unnsteinsdóttir, og sér hún um tímapantanir í síma 460 4644 kl. 13:30-15:30, en á þeim tíma er útibúið opið. Afgreiddar eru rafhlöður, framkvæmdar smáviðgerðir á heyrnartækjum og heyrnarmælingar framkvæmdar eftir tilvísun lækna.

Einnig er hægt að panta tíma alla virka daga kl:09.00-12.00 í síma 581 3855 en þá er svarað hjá HTÍ fyrir sunnan.

Starfsmenn frá HTÍ munu koma norður tvisvar í mánuði til að mæla og úthluta heyrnartækjum. Læknisskoðun fer fram á sama tíma og henni sinnir Friðrik Páll Jónsson, háls, nef- og eyrnalæknir. Þessar skoðanir fara fram á heilsugæslustöðinni, 4. hæð og verður fólk boðað sérstaklega til þeirra.

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands

Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 23:31
+0.9°SSV 2 m/s
  • Hausmynd - heilsugæsla

    Heilsugæslustöðin á Akureyri

    Markmið Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri er að stuðla með öllum tiltækum ráðum að því að efla, bæta og viðhalda heilbrigði sem eykur vellíðan og velferð íbúanna á þjónustusvæði stöðvarinnar.

    Sími Heilsugæslunnar er 460 4600

 

Heilsugæslustöðin á Akureyri – Hafnarstræti 99, 3.-6. hæð – 600 Akureyri – Simi 460 4600 – Fax 461 2605 – hak@hak.ak.is