Gjaldskrá fyrir aðila með lögheimili utan Íslands

Gjöld fyrir heilsugæsluþjónustu fyrir þá sem ekki eru sjúkratryggðir (aðilar með lögheimili fyrir utan Ísland, Norðurlanda eða annara EES-ríkja. Gildir skv. reglugerð um heilbrigðisþjónustu við þá sem eru ekki sjúkratryggðir.

    Danish 1.1. 2012  English 1.1.2012     France 1.1.2012    Deutch 1.1. 2012 

Aðilar með lögheimili utan Íslands, Norðurlanda eða annarra EES-landa skulu greiða fullt gjald fyrir alla þjónustu sem veitt er.

Komugjöld:
Koma á heilsugæslustöð á dagvinnutíma kr. 6.200.-
Koma á heilsugæslustöð í mæðra- og ungbarnavernd kr. 6.200.-
Koma á á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma (slysadeild FSA) kr. 9.200.-

Vitjanagjöld: 
Vitjun læknis á dagvinnutíma kr. 13.300.-
Vitjun læknis utan dagvinnutíma kr. 16.600.- 

Vitjun annara en lækna á heilsugæslustöð: kr. 6.700.-

Vottorð: 
Kr: 5.000.- fyrir hverjar byrjaðar 20 mín. sem það tekur lækni að gera vottorðið. Gildir um öll vottorð.

Rannsóknir: 
Rannsóknir með beiðni:  Kr: 3.400 + 100% umframkostnaður.
Þungunarpróf Kr: 650.- 
Streptokokkarannsóknir Kr: 750.- 
Lyfjaleit í þvagi Kr: 2.000.- 
Lykkja(t) Kr: 6.300.- 
Hormónalykkja Kostnaðarverð

Bóluefni: Sama verð og gildir fyrir alla aðra.


Fyrir einstaklinga frá Norðurlöndum og EES löndum:

Einstaklingur tryggður í EES-landi (þetta á einnig við um íslenska ríkisborgara með lögheimili í öðru EES-landi) sem þarf á skyndilegri og nauðsynlegri læknishjálp að halda þegar hann dvelst hér á landi á að greiða eins og þeir sem eru sjúkratryggðir á Íslandi.

Forsenda þess er þó að hlutaðeigandi leggi fram:

  •      Gilt sjúkratryggingakort (þau líta eins út frá öllum EES löndunum (gildir í Finnlandi, Frakklandi, Grikklandi, Hollandi, Írlandi, Ítalíu, Kýpur (gríska hlutanum), Lettlandi, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Möltu, Noregi, Portúgal, Póllandi, Slóvakíu, Slóveníu, Spáni, Sviss, Svíþjóð, Tékklandi, Ungverjalandi og Þýskalandi).
  •    Vegabréf

Geti hlutaðeigandi ekki framvísað sjúkratryggingakorti og vegabréfi skal heilsugæslustöðin krefja hann um fulla greiðslu.

Ath. Ferðamenn frá Norðurlöndum þurfa aðeins að vísa persónuskilríkjum.

 Móttökuritari á HAK skal taka ljósrit af sjúkratryggingakorti sjúklings og vegabréfi (eða persónuskilríkjum Norðurlandabúa) og senda til skrifstofustjóra HAK, sem sendir gögnin með reikningi og greinargerð læknis til Tryggingastofnunar ríkisins.

Í vafaatriðum er bent á að fá upplýsingar hjá Tryggingastofnun ríkisins (http://www.tr.is).


Gjöld fyrir ungbarnavernd fyrir börn með lögheimili erlendis

Börn sem eiga lögheimili á Norðurlöndum greiða ekkert fyrir ungbarnavernd á Íslandi gegn framvísun persónuskilríkja. Börn frá EES-löndum sem framvísa Evrópska sjúkratryggingakortinu greiða ekkert fyrir ungbarnaverndina.

Börn sem eiga lögheimili á Norðurlöndum og geta ekki framvísað persónuskilríkum, og börn frá EES ríkjum sem ekki geta framvísað sjúkratryggingakortinu greiða fullt gjald fyrir skoðun í ungbarnavernd og gjald fyrir bóluefni.

Móttökuritari á HAK skal taka ljósrit af sjúkratryggingakorti sjúklings og vegabréfi (eða persónuskilríkjum Norðurlandabúa) og senda til skrifstofustjóra HAK, sem sendir gögnin með reikningi og greinargerð læknis til Tryggingastofnunar ríkisins.

Börn með lögheimili utan Íslands, Norðurlanda eða annarra EES-landa skulu greiða fullt gjald fyrir ungbarnavernd. Sama gildir um þau börn sem hafa átt lögheimili á Íslandi skemur en 6 mánuði.


Gjöld fyrir mæðravernd fyrir konur með lögheimili erlendis

Konur með lögheimili á Norðurlöndum greiða ekkert fyrir mæðravernd gegn framvísun persónuskilríkja. Konur frá EES-löndum sem framvísa Evrópska sjúkratryggingakortinu greiða ekkert fyrir mæðraverndina.

Konur sem eiga lögheimili á Norðurlöndum og geta ekki framvísað persónuskilríkum, og konur úr Evrópuríkunum sem ekki geta framvísað sjúkratryggingakortinu greiða fullt gjald fyrir mæðraverndina.

 Konur með lögheimili utan Íslands, Norðurlanda eða annarra EES-landa skulu greiða fullt gjald fyrir ungbarna- og mæðravernd. Sama gildir um þá sem hafa átt lögheimili á Íslandi skemur en 6 mánuði.

Fullt gjald er kr. 6.200.- Rannsóknir á meðgöngu kr. 3.400+10% umframkostnaður.
Greiða þarf fyrir ómskoðun skv. gjaldskrá rannsóknarstofu FSA. 
Fyrir nauðsynlega túlkaþjónustu skal greiða fullt gjald samkvæmt gjaldskrá Alþjóðahúss. Í vafaatriðum er bent á að fá upplýsingar hjá Tryggingastofnun ríkisins (heimasíða TR)..